Ódýrara skart frá Pamelu Love

frettirpamlove.PNG

Pamela Love er þekktur skartgripahönnuður frá New York sem hefur getið sér gott orð fyrir armbönd í formi ránfuglsklóa og hálsmena í formi fuglahauskúpa. Pamela Love hannar skart í grófari kantinum og er því mikið af töff rokkpíum New York borgar sem hylla skartið. Það er verðsett í hærri kantinum, að sögn hönnuðarins vegna dýrs efniskostnaðar og af því að allt er handgert í stúdíóinu hennar. Þetta er ástæðan fyrir því að hún hefur ákveðið að koma með ódýrari línu á markaðinn, aðdáendum hennar til mikillar gleði.

Í samtali við ELLE sagði hún að ódýrari línan muni innihalda ólíka hluti frá því sem er að finna í aðallínunni en muni samt bera svipaðan fíling og fyrri verk hennar. Til að ná að selja skartið ódýrara ætlar hún að nota ódýrari efni, en halda samt áfram að handgera hvern einasta hlut. Það verður gaman að sjá hvernig Pamelu tekst til með þetta verkefni, en það er þó ekki það eina sem hún er með í pípunum um þessar mundir. Hún er í samstarfi við nokkra hönnuði sem hún getur ekki nafngreint enn sem komið er, en fyrir utan það mun sýna skart sitt á væntanlegri tískuviku í New York.

Áhugasamir geta skoðað verk Pamelu og www.pamelalovenyc.com.