Ofurfyrirsætur án farða í Harper‘s Bazaar

frettir2008.PNG

Ofurfyrirsætur níunda og tíunda áratugarins tóku farðann af fyrir myndaþátt í septemberhefti Harper‘s Bazaar, myndaðan af Peter Lindbergh. Lindbergh er ekki alls ókunnur óförðuðum fyrirsætum því hann myndaði nokkrar evrópskar fyrirsætur og leikkonur án farða fyrir aprílblað franska Elle. Mánuði seinna lýsti hann því yfir í viðtali að hann væri þreyttur á ofur photosjoppuðum myndum í tískutímaritum. Hann heldur því áfram að fanga náttúrulega fegurð fyrirsæta og sýna konum að enginn er fullkominn – ekki einu sinni þær.

Þær ofurfyrirsætur sem birtast í svarthvíta myndaþættinum eru Kristen McMenamy, Helena Christensen, Shalom Harlow, Claudia Schiffer, Cindy Crawford, Tatjana Patitz, Nadja Auermann og Amber Valletta. Útliti fyrirsætanna var lítið sem ekkert breytt í myndvinnsluforriti og þær eru hafðar í einföldum fötum til að leggja áherslu á andlit þeirra. Fyrirsæturnar eru enn fallegar þó að þær séu komnar af léttasta skeiði en framtakið er hreint út sagt frábært af hálfu Peter Lindbergh, fyrirsætanna og Harper‘s Bazaar.