Olsen systur orðnar opinberir fatahönnuðir

frettirolsens.PNG

Alexander Wang; Ashley & Mary-Kate Olsen; Jason Wu.

Olsen systurnar, þær Ashley og Mary-Kate, hafa verið opinberlega velkomnar inn í heim tískunnar. Þessi ‚vígjun‘ felur í sér að nú eru þær meðlimir í félagi amerískra fatahönnuða, CFDA. Systurnar hafa verið að gera það gott að undanförnu með fatalínum sínum The Row og Elizabeth & James, og því er inngangan í félagið eflaust mikill heiður fyrir þær. Ef marka má viðtal við Ashley frá því í maí, þá ætlar hún að einbeita sér að tískuferlinum á næstunni og leggja leiklistina á hilluna.

Það fá ekki hverjir sem er að vera meðlimir félagsins en formaður CFDA, Diane von Furstenberg, hefur greinilega verið í rausnarlegu stuði í ár þar sem 31 nýir meðlimir bættust í hópinn. Fyrir utan Olsen systur eru þar meðal annars Alexander Wang og Jason Wu sem báðir hafa komið sér vel fyrir á tískukortinu síðustu árin. Í lok október heldur CFDA veglega veislu fyrir nýju meðlimina þar sem búast má við öllu helsta tískufólkinu.