Oscar de la Renta dissar frú Obama

39401239883272frettirobama.PNG
Oscar de la Renta; Michelle Obama í kjól frá Azzedine Alaia; Michelle í umræddri peysu í Buckingham höllinni; Michelle í gulum kjól frá Thakoon.

Undanfarnar vikur hafa forsetahjón Bandaríkjanna, Barack og Michelle, verið í ferðalagi um Evrópu. Mikið hefur verið rætt um klæðnað Michelle, hvaða hönnuðum hún klæddist og hvernig flíkum hún var í. Líkt og margir aðrir hafði hönnuðurinn Oscar de la Renta sínar skoðanir á klæðnaði forsetafrúarinnar. Það virtist fara fyrir brjóstið á honum að hún skyldi klæðast fatnaði eftir evrópska hönnuði líkt og Givenchy, Azzedine Alaia, Moschino og Etro í ferðalaginu.

„Iðnaðurinn okkar er að ganga í gegnum erfiða tíma," sagði de la Renta í samtali við Women‘s Wear Daily. „Ég held að það væri frábært ef forsetafrúin klæddist Amerískum nöfnum. Það er mikið af hæfileikaríku fólki hér líka." Það sem kemur á óvart við ummæli hans er að Obama hefur alls ekki sniðgengið ameríska hönnuði en í stað þess að velja þá rótgrónu líkt og de la Renta sjálfan, hefur hún styrkt yngri hönnuði samanber Jason Wu og Thakoon.

De la Renta reyndi að koma með jákvæðan punkt, "hún hefur svo flott útlit að ef hún myndi klæðast kartöflupoka myndi hún líta vel út." Jákvæðnin stóð ekki lengi því hann gagnrýndi sérstaklega peysuval frú Obama þegar hún hitti Bretadrottningu, „þú ferð ekki í peysu í Buckingham höllina." Hann lét ekki staðar numið, „fjölbreyttni Bandaríkjanna er það sem gerir þetta land gott. En það er mikið af hönnuðum þarna úti. Mér finnst það rangt að fara í eina stefnu eingöngu."

Það verður erfitt fyrir forsetafrúnna að gera alla ameríska hönnuði glaða og eflaust hefur hún verið að reyna að viðurkenna evrópska hönnuði þar sem hún ferðaðist um álfuna. De la Renta hefur sætt mikilli gagnrýni fyrir ummæli sín og reyndi að sópa þeim undir teppið í sjónvarpsþættinum The View, „ég valdi orð mín illa. Ég sé eftir því." Hönnuðurinn Azzedine Alaia hafði þetta að segja um málið, „það er ekki hans að gefa henni ráð. Michelle Obama er núna; Oscar de la Renta er ekki lengur."