Óskarsverðlaunahátíð tískuheimsins
Hönnuðir efri röð frá vinstri: Anna Sui; Lorenzo Martone og Marc Jacobs. Neðri röð: Justin Giunta, Alexander Wang og Tim Hamilton; Lazaro Hernandez og Jack McCollough sem mynda Proenza Schouler; Kate og Laure Mulleavy sem mynda Rodarte ásamt Diane von Furstenberg.
Hin árlega verðlaunaafhending ráðgjafanefndar amerískra fatahönnuða, CFDA, var haldin hátíðlega í New York í gær. Kynnir afhendingarinnar var þýska leikkonan Diane Kruger og klæddist hún rauðum míníkjól frá Jason Wu. Leikkonan og grínistinn Tracy Ullman sá hins vegar um að halda húmor tískufólksins á betri nótunum. Tracy byrjaði á því að gera grín að umdeildu atviki á Costume Institute galakvöldinu í maí þegar Keither Sutherland nefbraut Proenza Schouler hönnuðinn Jack McCollough. Tracy, sem er þekkt fyrir eftirhermur sínar af frægu fólki innan tískuheimsins, tók svo snilldarlega eftirhermu af ritstýru ameríska Vogue, Önnu Wintour.
Viðburðurinn var yfirmáta veglegur en þar voru samankomnar 60 fyrirsætur á tröppum Alice Tully Hall og voru 20 fyrirsætur klæddar í hönnun hvers hönnuðs sem tilnefndir voru fyrir kvenfatahönnuð ársins, en það voru Marc Jacobs, Narciso Rodriguez og systurnar Kate og Laura Mulleavy sem hanna undir Rodarte. „Í fortíðinni höfum við alltaf heyrt að verðlaunaafhendingin snúist um tísku en það sé engin lifandi tíska sýnd á afhendingunni. Nú, þetta árið munið þið sjá lifandi tísku," sagði framkvæmdastjóri CFDA, Steven Kolb.
Marc Jacobs var tilnefndur í tveimur flokkum en fékk hvorug verðlaunin, í staðinn fékk hann alþjóðleg verðlaun fyrir störf sín hjá franska tískuhúsinu Louis Vuitton. Jacobs hélt hjartnæma ræðu við afhendingu þeirra verðlauna. „Ég er heppnasti maðurinn í heiminum. Ég hef tvö æðisleg störf og vinn með besta fólkinu," sagði hönnuðurinn sem kom á viðburðinn með unnusta sínum Lorenzo Martone. Alexander Wang var rólegur yfir öllu saman og sagðist alls ekki stressaður fyrir afhendinguna og að þegar hann vaknaði um morguninn hafi hann verið búinn að gleyma verðlaununum. Wang endaði svo á því að vinna Swarovski verðlaun fyrir kvenmannsfatnað.
Hér er listi yfir verðlaunahafa kvöldsins:
Kvenfatahönnuðir ársins: Rodarte
Hönnuðir ársins fyrir karlmannsfatnað: Italo Zucchelli fyrir Calvin Klein og Scott Sternberg fyrir Band of Outsiders
Aukahlutahönnuðir ársins: Proenza Schouler
Swarovski verðlaun fyrir karlmannsfatnað: Tim Hamilton
Swarovski verðlaun fyrir kvenmannsfatnað: Alexander Wang
Swarovski verðlaun fyrir aukahluti: Justin Giunta fyrir Subversive Jewelry
Vinsældarverðlaun: Ralph Lauren
Virðingarverðlaun ársins: Michelle Obama
Alþjóðleg verðlaun ársins: Marc Jacobs fyrir Louis Vuitton
Verðlaun fyrir lífstíðarafrek: Anna Sui
Smelltu hér til að lesa tilnefningarnar sem voru tilkynntar í mars.
