Pamela Anderson á pallinum hjá Westwood

48331236895912pamelawestwood.PNG

Sýning Vivienne Westwood, sem átti sér stað í París síðastliðinn föstudag, hefur fengið talsverða umfjöllun. Þá sérstaklega fyrir fyrirsætuval frú Westwood, en Pamela Anderson var meðal fyrirsæta á sýningarpallinum. Anderson er andlit sumarherferðar Westwood og birtist í auglýsingunum ásamt Westwood sjálfri og eiginmanni hennar, Andreas Kronthaler.

Vivienne Westwood er þekkt fyrir að taka tískuna ekki of alvarlega og þekkt fyrir ögrandi og djarfan fatnað. Það er hægt að búast við öllu frá Westwood og það kom því ekki algjörlega á óvart að Pamela skyldi birtast á sýningarpallinum enda nýjasta ‘muse‘ hönnuðarins. Þær eru orðnar ágætar vinkonur þar sem þær deila sama áhuganum á umhverfismálum en haustlínan átti einmitt sterkan innblástur í hækkandi hitastig jarðar.

Anderson ströttaði niður pallinn í þrem mismunandi samsetningum. Fyrst klæddist hún stuttum, bleikum kjól og stífu, útstæðu balletpilsi sem mynti á vængi en hendurnar á henni voru bundnar fyrir aftan bak. Því næst var hún í stuttermabol sem á stóð +5°, jakka og mínístuttbuxum sem voru kannski það eina sem var í einhverja líkingu af því sem hún vanalega klæðist.

Í lokin kom hún svo fram í þröngum, svörtum satínsíðkjól með svörtu tjullefni um barminn og höfuðið líkt og slör. Húnn gekk svo sýningarpallinn í sama kjólnum með hönnuðinum sjálfum í enda sýningarinnar. Það má segja að Pamela hafi svo sannarlega hrist upp í sýningunni enda alltaf gaman að sjá aðrar en örmjóar fyrirsæturnar.