Patricia Field og Sex and the City
Patricia Field; Sarah Jessica Parker í hlutverki Carrie Bradshaw í fyrri Sex and the City myndinni; fjórar aðalleikonur myndarinnar á frumsýningunni í fyrra.
Patricia Field, hinn vinsæli stílisti Sex and the City, hefur verið mikið í fréttunum undanfarið tengt framhaldsmynd Sex and the City og öðrum stílistastörfum. Sarah Jessica Parker, sem leikur tískudömuna Carrie Bradshaw, vildi víst gera klæðnað myndarinnar aðeins kreppuvænni og slá þannig í takt við tíðarandann. Field var ekki alveg á því. „Ég nota ekki kreppu sem viðmiðun fyrir sköpun mína," segir hún. Fljótt komust á þær sögusagnir að Field myndi ekki stílisera væntanlega mynd en þeim hefur nú verið neitað.
Í samtali við Grazia tímaritið í síðustu viku talaði Field um önnur stílistastörf, og opinberaði hún þann draum um að stílisera söngdrottninguna Susan Boyle. „Ég myndi örugglega gera hana að glamúr óperudívu." Í öðru viðtali talaði hún m.a. um möst sumarsins, sem hún segir vera harem buxur, og um Victoriu Beckham og Lady Gaga, sem hún hyllir fyrir stíl sinn. „Þær eru ólíkar sem stílíkon, en sem einstaklingar báðar mjög stíliseraðar á sinn eigin hátt." Þessar umsagnir vekja nokkra athygli sökum þess að Field sagði í lok apríl að hún væri þreytt á að tala um tísku.
Patricia Field er þó ekki eingöngu þekkt fyrir að vera stílisti Sex and the City. Hún á einnig heiðurinn af tískunni í kvikmyndunum The Devil Wears Prada og Confessions of a Shopaholic ásamt sjónvarpsþáttunum Ugly Betty. Hún á og rekur eigin verslun í New York sem hefur fengið orð á sér fyrir sérvitrar tískuvörur. Field tekur áhættur þegar kemur að tísku og gerir ýmislegt óvænt sem aðrir myndu ekki þora. Það eru eflaust margir sem bíða spenntir eftir næstu Sex and the City mynd, ekki bara útaf myndinni sjálfri, heldur einnig fyrir guðdómlega tískuna.
