Patricia Field þreytt á tískutali

26571240671052frettir2504.PNG

Patricia Field var á dögunum stödd í góðgerðarpartýi þar sem hún var spurð út í tískuheiminn en svo virtist sem hún væri ekki í skapinu til að ræða um tískumál. „Þetta er fyndið, ég er alltaf að velta því fyrir mér af hverju allir séu svona áhugasamir um tísku," sagði hún í samtali við New York Magazine. „Ég meina, ég elska þetta, og þetta er skemmtilegt og allt það, en það er margt annað áhugavert sem hægt er að tala um. En allir eru svo uppteknir af tísku."

Field kaus frekar að ræða um átrúnaðargoð sín, Sókrates og Einstein. „Sókrates var snillingur og snilligáfa hans er sú að hann kom fram með nýjar hugmyndir á einfaldan og skiljanlegan hátt," upplýsti hún blaðamanninn. „Albert Einstein var alveg eins," og svo hélt hún áfram að útskýra kenningar Einstein. Kannski Field sé orðin þreytt á sífelldu tískuhjali, en hún er ekki hinn venjulegi stílisti og er talin hafa einstaka sýn á tísku.

Fyrir þá sem kannast ekki við nafnið, þá er Patricia Field þekktur stílisti, og á hún til að mynda heiðurinn af stíl Sex and the City þáttanna og myndarinnar. Aðspurð hvort hún muni einnig sjá um tískuna í framhaldsmyndinni sagðist hún gera ráð fyrir því. „Ég er ekki þreytt á tísku. Ég er með tísku í blóðinu. En þú veist. Ekki setja mig í þann kassa. Ég er meira en tíska. Ég er 360 gráðu kona."