Penelope Cruz klæðist Chanel í nýjustu kvikmynd sinni

57941243188456frettircruz.PNG
Penelope Cruz (í Marchesa) og Pedro Almodovar á frumsýningu Broken Embraces; Penelope í tökum á Broken Embraces.

Í nýjustu kvikmynd spænsku leikkonunnar Penelope Cruz klæðist hún alfarið fatnaði frá Chanel tískuhúsinu. Hin heppna Cruz sést í Chanel flíkum á hvíta tjaldinu í myndinni Broken Embraces (á spænsku Los abrazos rotos) þar sem hún leikur persónuna Lenu. Myndin er leikstýrð af Pedro Almodovar og var frumsýnd á Cannes kvikmyndahátíðinni á þriðjudaginn síðasta. „Chanel er ein besta uppfinning tuttugustu aldarinnar," sagði leikstjórinn Almodovar árið 1991 en svo virðist sem aðdáun hans á merkinu hafi ekki minnkað með árunum.

Penelope klæðist bæði nýjum og eldri fatnaði frá Chanel í myndinni. Í þessum einstaka Chanel búningaskáp er til dæmis að finna kjól úr hátískulínu frá 1992 og flík úr cruise línu ársins 2007. Fatnaðurinn fyrir myndina var valinn úr línum Karl Lagerfeld fyrir tískuhúsið síðustu 14 ár, en það voru einnig sérsaumaðar flíkur á Penelope fyrir myndina. Ekki nóg með það að Penelope klæðist fatnaði frá Chanel í Broken Embraces, heldur sést hún einnig með aukahluti og skart frá franska merkinu, þar á meðal 2.55 töskur og eyrnalokka með CC lógóinu.