Peter Copping til Nina Ricci

82151240604768frettir2404.PNG
Að ofan: Peter Copping. Að neðan: Olivier Theyskens. Vor- og sumarlína Nina Ricci 2009; haust- og vetrarlína Nina Ricci 2009.

Forsvarsmenn Nina Ricci tískuhússins hafa loksins tilkynnt hver tekur við af Olivier Theyskens sem yfirhönnuður. Síðustu vikur hefur mikið verið slúðrað um hver væri eftirmaður hans en nú hefur verið gert opinbert að það er Peter Copping. Alltaf þótti frekar líklegt að Copping væri maðurinn þar sem strax í janúar komu fréttir um að hann myndi taka við af Theyskens.

Peter Copping er ekki mjög þekkt nafn innan tískuheimsins en hann vann áður í tólf ár fyrir Marc Jacobs hjá Louis Vuitton og er sagður hafa verið hægri hönd Jacobs. Copping hóf störf hjá Nina Ricci í vikunni og vinnur nú hörðum höndum að sinni fyrstu línu fyrir tískuhúsið, sem er sumarleyfislína og fer hún í verslanir í desember. Næsta lína á eftir henni er fyrir haust og vetur 2010-11, en engin lína verður sýnd í september næst komandi fyrir sumarlínu næsta árs.

Yfirmenn Nina Ricci vilja leyfa Copping að koma sér vel fyrir og er það ástæðan fyrir því að hann byrjar ekki á sumarlínu næsta árs. Þess í stað fær hann meiri tíma til að einbeita sér að því að marka sína stefnu fyrir haust og vetur 2010. Samkvæmt Copping sjálfum segist hann ætla að gera Nina Ricci „nútímalegt aftur og breyta Ricci stúlkunni í konu." Hann er einnig sagður vilja bæta aukahlutalínu við aðallínuna.

Margir sáu á eftir Theyskens sem var lofaður fyrir fallega og dramatíska hönnun en síðasta lína hans fyrir Nina Ricci var sýnd á tískuvikunni í París í mars og var sögð hans besta hingað til. Talið er að ágreiningur milli Theyskens og yfirmanna Nina Ricci hafi kostað hann starfið. Nú er orðið ljóst að Copping hefur verið fenginn til að gera söluvænni línur en Theyskens var þekktur fyrir frekar listrænt fantasíu sjónarmið á tískuhönnun.

Copping, sem er útskrifaður úr hinum margrómaða Central Saint Martins listaskóla, er þriðji hönnuður tískuhússins á þremur árum og eru miklar vonir bundnar við hann. „Ég tel [Nina Ricci] vera nafn með góða sögu. Ég elska alla franska tísku og Nina Ricci er mjög franskt tískuhús. Þetta mun vera í námunda við það sem mér líkar persónulega," sagði Copping um það sem við má búast frá honum.

Copping hefur í huga að taka tillit til sögu klæðskeraiðnar Nina Ricci og eins og áður sagði færa sig í átt að kvenlegri stíl. „Ég vil að fötin hafi að geyma lúxus – föt sem konan nýtur þess að klæðast, og með athygli á smáatriði, sem er eitthvað sem ég lærði hjá Vuitton," sagði hann um hönnunarstefnuna. Hvað Theyskens varðar er hann sagður ætla að endurvekja merki í eigin nafni og þurfa því aðdáendur hans ekki að örvænta.