Phillip Lim eykur úrvalið í tískulínu sinni
Phillip Lim; 3.1 Phillip Lim sundföt; vor- og sumarlína 3.1 Phillip Lim 2009.
Ameríski fatahönnuðurinn Phillip Lim hefur verið vinsæll undanfarin ár fyrir klæðilegar og kvenlegar flíkur með flottum smáatriðum. Hann stofnaði tískumerkið sitt, 3.1 Phillip Lim, fyrir fimm árum síðan en síðan þá hafa hlutirnir gengið vel hjá þessum efnilega hönnuði. Hingað til hefur Lim enbeitt sér að fatnaði en nú ætlar hann að bæta við skóm, undirfötum og sundfötum við aðallínu sína. Nú þegar hafa sundfötin farið í sölu en búast má við undirfötum í lok mánaðarins og skólínu í júlí. Aðspurður hvort tíminn sé ekki óhagstæður til að fara í stækkun fyrirtæksins sagðist Lim ekki vera hræddur við efnahaginn.
Hönnuðurinn byrjar smátt en í sundfatalínunni eru tveir sundbolir og eitt bikiní en þau eru fáanlega í hvítu og svörtu með smáu blómamunstri. Undirfatalínan inniheldur fimm sett sem verða seld undir heitinu ‘3.1 Phillip Lim Initials‘, en orðið initials var valið „af því undirföt eru það fyrsta sem þú ferð í," útskýrði hönnuðurinn. Lim hefur verið jafn vinsæll meðal stjarnanna sem og venjulegra kvenna enda er hann jarðbundinn þegar kemur að hönnun. Það er akkúrat stefnan sem hann ætlar að fara eftir í skólínu sinni. „Allir eru að gera brjálæðislega skó, þannig við sögðum, ‘við skulum gera vinnuskó, en fágaða og fallega.‘" Nú geta því vinnandi amerískar konur gengið í 3.1 Phillip Lim frá toppi til táar, allt frá skóm til undirfata – og jafnvel á ströndinni.
