Phoebe Philo fyrir Celine

24021237835695frettir2303.PNG
Frá vinstri: Phoebe Philo, úr sumarlínu Chloé 2006 sem var jafnframt síðasta lína Philo fyrir merkið.

Greint hefur verið frá því að fyrsta lína Phoebe Philo fyrir tískumerkið Celine verði resort lína næsta árs. Phoebo Philo er breskur tískuhönnuður, en hún byrjaði að vinna hjá Chloé 1997 og starfaði þá sem aðstoðarkona Stellu McCartney sem þá var yfirhönnuður Chloé. McCartney þjálfaði Philo í að verða yfirhönnuður tískuhússins árið 2001. Philo naut mikillar hylli á meðan hún starfaði hjá Chloé og er sögð eigan stóran þátt í því að gera merkið ‘inn‘ aftur.

Það eru ekki nýjar fréttir að Philo skuli vera komin til liðs við Celine, tilkynnt var í september á síðasta ári að hún ætti að taka við sem listrænn stjórnandi tískuhússins. Það var hins vegar orðin ráðgáta hvenær fyrsta lína hennar ætti að birtast á sýningarpöllunum. Fyrst var talið að hún ætti að hanna haust- og vetrarlínu fyrir 2009-2010, en svo var ekki og úr varð að hópur hönnuða innan Celine hannaði línuna í sameiningu.

Umtöluð resort lína, sem mun vera frumraun Philo hjá Celine, verður eflaust mikið hitt ef tekið er tillit til vinsælda hennar hjá Chloé, sem er ekki talið hafa náð sömu hæðum og þegar hún hannaði fyrir það. Resort lína samanstendur af fatnaði ætluðum (ríkum) sumarleyfisförum yfir vetrartímann og mun líklega vera kynnt í maí eða júní næst komandi. Philo hefur ekki verið í sviðsljósi tískuheimsins í um tvö ár og því eflaust margir aðdáendur sem hlakka til að sjá hvað Philo mun bjóða upp á í sinni fyrstu línu.

Það verður spennandi að sjá hvernig hún mun reyna að snúa Celine í rétta átt eftir að Ivana Omazic, fyrri hönnuður Celine, tókst ekki að breyta merkinu í stórt tískuhús eins og ætlast var af henni. Philo er sögð vera full eldmóðar í að hanna fyrir Celine en hún lét hafa eftir sér fyrir nokkru, "þetta er mjög spennandi skref fyrir mig, með því sem gæti orðið að einu efnilegasta merkinu í bransanum. Ég get ekki beðið eftir því að fara aftur í stúdíóið og byrja að skapa hönnun sem mun hressa upp á merkið, fá viðskiptavini spennta yfir vörunni og vinna með teymi sem er mjög einlægt og ástríðufullt um vinnu sína."