Pringle of Scotland sýnir í London í haust
Clare Waight Keller og Harold Tillman ásamt Erin O'Connor (t.h.); haustlína Pringle of Scotland 2009; Sasha Pivovarova í haustherferð Pringle.
Enn annað breskt tískuhús hefur tilkynnt komu sína á tískuvikuna í London í september næstkomandi, en það er Pringle of Scotland sem áður hefur sýnt í Mílanó. Clare Waight Keller, listrænn stjórnandi Pringle, segir þau vera „ótrúlega spennt" yfir því að sýna loksins í London með tilliti til þess að 195 ára afmæli tískuhússins er á næsta leyti. Pringle of Scotland sækir arfleið sína til Bretlands en það er rótgróið prjónaflíkafyrirtæki. Tískuhúsið hefur verið að sækja á undanfarið enda lúxushönnun af bestu gerð.
„Það er skynsamlegt að sýna í London þar sem við erum breskt merki og saga okkar er hér," sagði forstjóri Pringle of Scotland, Mary-Adair Macaire. „Þetta er mjög spennandi ár í tískunni fyrir London og við erum stolt af því að snúa aftur til svo listrænnar höfuðborgar. Sem breskt merki er þetta hugmynd sem við höfum gælt við lengi en þetta ár kvað á um fullkomið tækifæri til að halda upp á arfleið okkar og heiðra tískuráðið," segir listræni stjórnandinn, Clare.
Síðustu daga hafa tvö bresk tískumerki tilkynnt um heimkomu sína, fyrst var það Burberry og þar á eftir Matthew Williamson. Þetta er allt gert í tilefni 25 ára afmælis breska tískuráðsins sem stefnir á að tískuvikan í haust verði ein sú skrautlegasta hingað til. Það lítur því út fyrir að blessuð Anna Wintour, ritstjóri ameríska Vogue, verði að láta sjá sig í London þetta árið. Þrátt fyrir að Wintour sé bresk hefur hún sniðgengið tískuvikuna í London og einungis farið til hinna þriggja tískuborganna.
Tilkynningar bresku tískuhúsanna stoppa samt ekki hér. Harold Tillman er víst á höttunum eftir fleiri merkjum til að bætast í hópinn en hann vonast eftir meiri umfjöllun um tískuvikuna í London nú en áður. „Það eru viðræður í gangi við fleiri stór nöfn sem við erum fullviss um að komi aftur heim. Ég vil að við verðum mikilvægasti áfangastaður alþjóðlegra blaðamanna og innkaupafólks." Tillman er að vonum ánægður með nýjustu viðbótina í flóruna. „Það er frábært að merki með svo sterka breska arfleið sýni við hlið upprennandi stjarna eins og Giles, Christopher Kane, Marios Schwab og Richard Nicoll."
Lesa umfjöllun um tískuvikuna í London í febrúar.
