Rachel Bilson skrifar tískudálk
Maí hefti In Style; Rachel Bilson.
Leikkonan knáa, Rachel Bilson, hefur hafið störf fyrir In Style tímaritið þar sem hún skrifar mánaðarlegan tískudálk í blaðið. Dálkurinn er í spurningaformi þar sem Bilson svarar spurningum lesenda um stíl, ásamt því að ljóstra upp um sína uppáhalds tískustrauma hverju sinni. Dálkurinn svipar því nokkuð til þanns sem Chloe Sevigny heldur úti fyrir Elle tímaritið. Bilson hefur verið talsverð tískufyrirmynd síðustu ár og sést oftar en ekki í nýjustu trendunum og í fatnaði og skóm eftir flottustu hönnuðina. Hún hefur sjálf reynt fyrir sér í hönnun með línunni Edie Rose fyrir DKNY.
Ástæðan fyrir því að Bilson var fengin til að svara tískuspurningum lesenda In Style var sú að þegar þeir voru spurðir um hvaða stjarna hefði bestan persónulegan stíl sögðu flestir Rachel Bilson, þetta staðfestir stjórnandi ritstjóri In Style, Ariel Foxman. „Þeir elska hennar einstöku túlkun á öðruvísi glæsileika," segir Foxman um lesendur blaðsins. „Þannig mér datt í hug að það væri gaman að lesendurnir gætu tengst Rachel, og gefa henni því stað í tímaritinu þar sem hún gæti talað beint til kvennanna um sín stílsérkenni og tískuþráhyggjur."
Bilson ætlar ekki að taka að sér starf tískublaðamanns að fullu. „Ég ætla ekki að hætta í minni föstu vinnu til að verða tískuritstjóri í fullu starfi, þó ég njóti þess og það vekji áhuga minn," sagði stjarnan um nýja starfið. „Ég er í rauninni mest upp með mér að fólk vilji spyrja mig spurninga um stíl. Það er mér heiður að gera þetta." Búist við að sjá fyrsta dálk Bilson í maí hefti In Style en þar nefnir hún sínar uppáhalds flíkur og aukahluti fyrir sumarið sem eru meðal annars Lanvin sandalar og Matta klútar.
