Redux: Ný lína frá Givenchy

frettirredux.PNG

Riccardo Tisci, yfirhönnuður Givenchy, hefur hleypt af stokkunum nýrri viðbótarlínu við tískuhúsið sem kallast Redux. Línan inniheldur einkennandi Givenchy hönnun eins og hvítar skyrtur í ýmsum myndum ásamt svörtum þröngum buxum og leðri. Rúsínan í pylsuendanum eru gylltar metalhnappaskreytingarnar sem prýða m.a. jakka, vesti og töskur. Þær verða heitar í vetur eins og síðasta vetur en Riccardo Tisci sparar þær ekki í hönnunn sinni.

Planið mun vera að sýna Redux tvisvar á ári meðfram forlínum Givenchy. Markmið Redux er að vera með grunnflíkur að hætti Givenchy með nútíma Tisci twisti. Givenchy er þekkt fyrir svakalega hælaskó sem tískuaðdáendur slefa yfir, en þeir ættu að verða glaðir að heyra að Redux línan inniheldur einnig skó. Línan verður fáanleg frá og með október og hefur mun ódýrari verðmiða en aðallína Givenchy.