Samvinna Roksanda Ilincic og Whistles

42351246066043frettirroksanda.PNG
Roksanda Ilincic; Roksanda í eigin hönnun; haust- og vetrarlína Roksanda Ilincic 2009-2010.

Breska tískukeðjan Whistles hefur fengið serbneska hönnuðinn Roksanda Ilincic til að hanna fyrir sig línu af kokkteilkjólum. Illincic hefur löngum verið þekkt fyrir fallega kjóla úr ríkulegum efnum á borð við silki og satín í sterkum litum. Roksanda hefur verið búsett í London til fjölda ára þar sem hún sýnir tískulínu sína tvisvar á ári. Kokkteilkjólarnir sem Roksanda hannaði fyrir Whistles eru sjö talsins og koma í verslanir í Bretlandi í september. „Það er frábært að sjá að hönnun mín er að ná til breiðari hóps. Og það er ánægjulegt að starfa með Whistles teyminu." segir Roksanda.

Forstjóri Whistles er Jane Shepherdson sem var eitt sinn hátt sett í Topshop veldinu og er talinn heilinn á bakvið velgengni þeirrar keðju. Shepherdsen reynir nú eins og hún getur að koma Whistles upp á hærra plan og þar skipar lína Roksöndu stórt hlutverk. „Ég hef ætíð verið mikill aðdáandi Roksanda og að fá hana til að hanna afbragðs línu af kjólum fyrir Whistles hefur verið einstakt tækifæri," segir Shepherdsen. „Við höfum unnið náið að öllum skrefum hönnunarferlisins með Roksöndu til að ná fram hennar einstöku tilfinningu á leik og andstæðum lita, efna og áferða. Það væri erfitt að verða ekki ástfanginn af komandi línu."

Uppfærsla: Hér fyrir neðan má sjá tvo af sjö kjólum úr Roksanda línu Whistles.

15391246151700roksanda.PNG