Sarah Mower fyrir Breska tískuráðið

42501243626090frettirbfc.PNG
Sarah Mower; hönnun Mark Fast sem fékk NEWGEN styrkinn fyrir haust 2009; hönnun Danielle Scutt sem fékk einnig NEWGEN fyrir haust 2009.

Þó að London sé vanalega talin ein af tískuborgunum fjórum eru tískuhönnuðir frá London ekki eins mikið í sviðsljósinu eins og þeir amerísku, frönsku og ítölsku. Þetta gæti stafað af því að ekki er eins mikið af rótgrónum breskum hönnuðum, en það er hins vegar mikið af ungum hönnuðum í London. Breska tískuráðið tilkynnti í síðustu viku að tískublaðamaðurinn Sarah Mower hafi verið skipuð í embætti sérstaks sendiherra fyrir upprennandi hönnunarhæfileika. Mower á í þessari nýju stöðu innan ráðsins að hjálpa til við að vekja athygli, og auka erlend sölutækifæri, á tískuhönnuðum staðsettum í London.

"Það er mér heiður að hafi verið beðin um að taka að mér þetta hlutverk af hálfu upprennandi hönnuða," sagði Mower, sem vinnur meðal annars fyrir Vogue og Style.com. „Við höfum fyrirbæri í Bretlandi fyrir framan okkur í augnablikinu: einstaklega líflegt, fjölbreytilegt og blómstrandi hæfileikafólk sem er eitt það mest spennandi á heimsvísu. Ég er glöð að geta þjónustað það í að hjálpa til við að sýna þessa ótrúlegu orku og frumleika hér heima og alþjóðlega." Hún segir efnahagslífið erfitt en trúir því að fallega gerður fatnaðurinn muni gefa hönnuðunum tækifæri á að skína.

Breska tískuráðið starfrækir styrk sem kallast NEWGEN eða Ný Kynslóð og sem styður við unga og hæfileikaríka hönnuði. Framkvæmdastjóri ráðsins segir framsýni og reynslu Mower muna hjálpa ráðinu að þróa NEWGEN styrkinn. Grazia tímaritið fékk Mower til að ljóstra upp um nokkra upprennandi hæfileika. „Það er stór bylgja af aukahlutahönnuðum að ryðja sér til rúms," sagði hún. Þar á meðal eru tveir ungir skóhönnuðir, Michael Lewis og Atalanta Weller, sem eru að standsetja sín eigin merki eftir að hafa unnið fyrir stór tískuhús í nokkurn tíma. Mower fylgist einnig grant með þeim tískuhönnuðum sem eru að útskrifast úr hönnunarskólum og býst við góðum hlutum frá þeim. Eftir tvær vikur verður gefið upp hverjir hljóta NEWGEN styrkinn fyrir sumarið 2010.