Scarlett Johansson andlit Mango

25981244156087frettirmango.PNG

Leikkonan Scarlett Johansson situr fyrir í auglýsingaherferð spænsku tískukeðjunnar Mango fyrir haustið. „Hún er fullkomin borgarkona Mango, sjálfstæð og frjálslynd," sögðu forsvarsmenn Mango við Women‘s Wear Daily en þeir komu því einnig á framfæri að Scarlett hefði einstakan persónuleika. Scarlett er alls ekki ókunnug fyrirsætustörfum því hún er nú þegar andlit lúxuskampavínsins Moet & Chandon og sat fyrir í snyrtivöruauglýsingu Dolce & Gabbana nýlega.

Í Mango herferðinni tekur hún við af meðleikkonu sinni Penelope Cruz úr myndinni Vicky Cristina Barcelona. Penelope hefur verið andlit Mango síðustu tvö ár og hefur hannað sína eigin línu fyrir keðjuna ásamt systur sinni Monicu. Af myndum sem teknar voru af leikkonunni á bakvið tjöldin í myndatökunni verða auglýsingarnar kynþokkafullar og seiðandi en þar birtist Scarlett fyrir sjónir með úfið hár og dökk augu. Ljósmyndari tökunnar var Mario Sorrenti en fréttir herma að hann hafi myndað fleiri stjörnur, þ.m.t. Daisy Lowe og Leigh Lezark, fyrir herferðina.