Scott Schuman gefur út The Sartorialist bók
Scott Schuman; Julia Ragolia, stílisti og ritstjóri City tímaritsins, fékk heiðurinn að vera á kápunni; harðspjalda útgáfan fæst í takmörkuðu upplagi.
Scott Schuman er best þekktur fyrir að vera ljósmyndari götustílsbloggsins The Sartorialist. Það má svo sannarlega staðhæfa að Schuman heldur úti vinsælustu bloggsíðunni með götustílsmyndum á netinu. Enda eru ekki margir sem lifa af því að ferðast á milli heimsborga og taka myndir af smart fólki. Schuman hefur nú ákveðið að gefa út bók undir nafni bloggsíðunnar og verður hún fáanleg 12.ágúst. Nú þegar er hægt að forpanta bókina á Amazon.com, bæði ódýrari útgáfu í kiljuformi, sem og sérstaka harðspjalda útgáfu sem kemur út 26.ágúst.
Schuman, sem hefur verið að vinna að bókinni síðan í janúar, segir það ‘brjálæðislegt‘ að vera loks komin með hana í hendurnar. „Ég veit að ég tók allar myndirnar, ég man eftir að hafa tekið hverja og eina, en ég trúi því samt ekki að ég hafi tekið allar þessar myndir,“ segir ljósmyndarinn stoltur. Bókina prýða bestu ljósmyndir sem birst hafa á The Sartorialist blogginu síðustu ár, sem hafa verið þó nokkuð margar. Bókin er því mest megnis ljósmyndabók og er fínasta stofustáss sem hægt er að kíkja í þegar manni vantar innblástur fyrir stílinn.
Áhugasamir geta skoðað myndir Schuman á www.thesartorialist.com.
