Septemberheftið

75041244048368frettirseptember.PNG

The September Issue er heimildarmynd um hið fræga september hefti af ameríska Vogue, en það er þeirra þykkasta og efnismesta blað á ári hverju. Í myndinni er ritstjóranum Önnu Wintour og starfsfólki hennar fylgt eftir við gerð september heftis ársins 2007, en fyrir utan að vera stærsta blað ársins var það einnig stærsta tölublaðið sem nokkrum sinnum hefur verið gefið út. Þó að myndin hafi verið sýnd á Sundance kvikmyndahátíðinni í janúar þar sem hún vann til verðlauna þá mun almenningur ekki geta séð hana fyrr en í september þegar hún verður frumsýnd í Bandaríkjunum.

Í myndinni má sjá, fyrir utan Önnu Wintour, Grace Coddington sem er listrænn stjórnandi tímaritsins, en þeir sem séð hafa myndina segja hennar hlutverk nokkuð stórt. Slagorð myndarinnar er ‘Tíska er trúarbragð. Þetta er biblían.‘ en einn starfsmaður Wintour segir hana einskonar páfa. Með gerð myndarinnar langaði Wintour til að hleypa fólki inn fyrir dyrnar og skyggnast á bakvið blaðsíður tímaritsins. Hún vildi sýna þá ástríðu og langa vinnudaga sem fara í gerð þess. Tökulið var við tökur á myndinni í níu mánuði og tók meira að segja senur upp á heimili Wintour. Leikstjóri heimildarmyndarinnar er R.J. Cutler sem segir það heiður hafa fengið tækifæri á að gera myndina.