Sex and the City æði í New York
Þegar framleiðendur framhaldsmyndar Sex and the City auglýstu eftir aukaleikurum og fram kom að hinn venjulegi borgari átti tækifæri til að mæta í prufur mátti búast við miklu öngþveiti. Svo varð líka raunin. Röð af glamúrliði af báðum kynjum og á öllum aldri myndaðist fyrir utan staðinn þar sem prufurnar fóru fram, og vonuðust allir til að fá smáhlutverk í myndinni. Framleiðendurnir óskuðu eftir mjög fjölbreyttum týpum í hlutverkin, en þau voru tískumódel, djammlið, hommar og lesbíur, alþjóðlegar týpur, atvinnumenn í fótbolta, stjörnutýpur og ríkar sósíalítur. Hvaða aðdáandi sem er gat því dressað sig upp og sótt um hlutverk.
New York Magazine var á staðnum og tók stöðuna á fólkinu. Sjá myndbandið hér fyrir neðan.
