Sex and the City í London

19491239015054frettir0604.PNG

Það virðist sem hluti af næstu Sex and the City bíómynd verði tekinn upp í Lundúnum ef marka má breska fréttamiðla. Nýlega var teymi úr starfsliði myndarinnar statt í Bretlandi til að leita að hentugum staðsetningum fyrir tökur, en þar á að eiga sér stað stór partur af söguþræði Carrie og Big. Cris Noth, sem leikur Big, sagði í fyrra að hann langaði til koma til Bretlands í tökur og virðist því sem hann fái nú ósk sína uppfyllta.

„Framhaldsmyndin mun innihalda lykilsögusvið með Carrie og Big í London, hugsanlega í sex vikna tökum í vetur," sagði heimildarmaður við tímaritið Grazia. Þótt ekki hafi verið staðfest að áralangur stílisti Sex and the City, Patricia Field, muni stílisera fereykið í myndinni þá er þess að vænta. Breski hönnuðurinn Vivienne Westwood er sögð leggja henni hjálparhönd en það á allt saman eftir að koma í ljós.

Myndinni hefur verið gefin útgáfudagsetning, 28.maí 2010, og því rúmir 13 mánuðir til stefnu.