Showroom Reykjavík

50221241791919frettirshowroom.PNG
Andersen & Lauth, E-label, Steinunn.

Fatahönnnunarfélag Íslands stendur fyrir Showroom Reykjavík, sem hefst í dag klukkan 17 í Hafnarhúsinu. Markmiðið er að sýna það sem íslenskir fatahönnuðir hafa fram að færa en þar verða allir þeir helstu eins og Andersen & Lauth, E-Label, Mundi og Steinunn ásamt fatahönnunarnemum úr Listaháskóla Íslands. Samtals eru það yfir 20 hönnuðir og fatafyrirtæki sem verða með nýjar fatalínur og flíkur til sýnis og því hentugt að geta mætt á einn stað til að skoða það sem um er að vera í tískuheimi Íslands í dag.

Showroom Reykjavík var einnig haldið síðasta vor í Hafnarhúsinu og gekk það vonum framar, en þá kom fram að fyrirmynd sýningarinnar væru erlendar sölusýningar sem fataframleiðslufyrirtæki taka þátt í til að koma vöru sinni á markað. Mikill áhugi hefur verið á íslenskri hönnun eftir að efnahagskreppan skall á og er Showroom Reykjavík meðal annars ætlað sem kynning fyrir innkaupafólk tískuverslana.

Showroom Reykjavík stendur milli kl. 17 og 19 í dag, föstudaginn 8.maí en það er einnig opið á morgun, laugardaginn 9.maí, kl. 10 – 17.