Shulman vill heilbrigðari fyrirsætur

83211245260599frettirshulman.PNG

Alexandra Shulman, ritstýra breska Vogue, er ekki harla ánægð með þá líkamsmynd sem tískuheimurinn dregur upp þar sem ofurmjóar fyrirsætur eru hylltar. Þetta segir hún í bréfi sem hún sendi nýverið á tískuhönnuði og tískuhús, þar á meðal Prada og Chanel. Hún úthúðar þá fyrir að framleiða sýnishornaflíkur í agnarsmáum númerum og segir sumar fyrirsætanna ekki passa í fötin. Hún þurfi jafnvel að grípa til þess ráðs að bæta þyngd á fyrirsæturnar með hjálp tölvutækninnar. Bréfið var hálfgerð skammarræða þar sem Shulman sparar ekki stóru orðin en svo virðist sem hún sé komin með nóg af líkamsgerð fyrirsæta dagsins í dag.

Shulman kemur því á framfæri að ritstjórar tískutímarita neyðist til að nota fyrirsætur með „bein sem skaga út" úr líkamanum og engin brjóst og mjaðmir vegna þess að sýnishornaflíkurnar sem tímaritin fá séu svo litlar. „Ég finn að viðbrögðin frá lesendum mínum og að almenna tilfinningin í Bretlandi er sú að fólk vill í raun ekki sjá svo grannar stelpur, hvorki í myndaþáttum né auglýsingum," segir Shulman í bréfinu. Engir hönnuðir hafa tjáð sig um bréfið en það átti ekki að rata í fjölmiðla. Líklegt er þó að þetta muni kveikja aftur á umfjölluninni um grannar fyrirsætur eftir nokkra pásu.