Síðasti keisarinn

93731238255744frettir2803.PNG

Ítalski tískuhönnuðurinn Valentino Garavani var á dögunum viðstaddur frumsýningu heimildarmyndar um Valentino veldið. Hollywood stjörnurnar Anne Hathaway, Claire Danes og Gwyneth Paltrow voru allar mættar á frumsýningu myndarinnar í New York, sem ber heitið Valentino: The Last Emperor og gæti útlagst á íslensku sem Valentino: Síðasti keisarinn.

Myndin spannar glæstan feril Valentino sem einn fremsti tískuhönnuður samtímans. Þar er honum fylgt eftir síðustu tvö árin sem hann var við stjórn tískuhúss síns, áður en hann settist í helgan stein. Giancarlo Giammetti er einnig stór hluti af myndinni, bæði sem lífsförunautur Valentino og starfsmaður tískuhússins.

Það var ritstjóri Vanity Fair tímaritsins, Matt Tyrnauer, sem stýrði myndinni. Hann hefur tjáð sig um ýmislegt sem gekk á við gerð myndarinnar, "Valentino er mjög óþolinmóður. Hann er naut. Hann elskar dramatík. Það eru prímadonnuaugnablik og það eru bræðisköst, og þörg þeirra er beint að myndavélinni." Tyrnauer lofar að áhorfendur sjái "hverja sprenginguna á fætur annarri."

Eins og gefur að skilja var Valentino ekki glaður þegar hann sá í fyrstu hvers konar mynd hafði verið dregin upp af hegðun hans. En eftir dágóða stund sætti hann sig þó við hana, enda var einnig fullt af glamúrmómentum, sérstaklega þegar hann sýndi sína allra síðustu tískusýningu. Þar var samankomið allt helsta tískufólk heims á borð við Karl Lagerfeld, Diane von Furstenberg og André Leon Talley frá Vogue.

Þó að myndin sé nú farin í sýningu fyrir almenning, fengu útvaldir að sjá hana í ágúst á síðasta ári. Hún er sett í svipaðan kalíber og myndin um Karl Lagerfeld, Lagerfeld Confidential, og er algjört möst fyrir þá sem vilja skyggnast á bakvið tjöld tískuheimsins þar sem Valentino talar um kjóla, tískusýningar og líf sitt með ýktum brjálæðisköstum og krassandi dívustælum inná milli. Þetta er tískumynd eins og hún gerist best.
.