Sienna Miller ekki mikill hönnuður
Savannah og Sienna Miller með Matthew Williamson baksviðs eftir sýninguna; haust- og vetrarlína Twenty8Twelve 2009.
Leikkonan Sienna Miller kom árið 2007 með hönnunarlínuna Twenty8Twelve á markaðinn í samstarfi við systur sína, Savannah Miller. Strax frá byrjun var línan lofsverð og þótti fjölmiðlum hún standa úr í samanburði við önnur merki stjörnuhönnuða. Það sem hefur verið þeim systrum til góðs í hönnunarferlinu, er að Savannah er menntaður tískuhönnuður frá einum virtasta hönnunarskóla Bretlands, Central Saint Martins.
Í febrúar sýndu Miller systurnar í fyrsta sinn merki sitt á tískuvikunni í London. Eftir sýninguna, sem var vel mætt af ýmsum stjörnum og hönnuðum m.a. Matthew Williamson, sögðu Sienna og Savannah að Twenty8Twelve sameinaði stíl þeirra beggja og að þær nýttu krafta hvors annars í hönnuninni. Hins vegar sagði Seinna nýlega á frumsýningu myndarinnar The Mysteries of Pittsburgh að hún væri ekki svo mikill hönnuður í sér.
Eins og við var að búast er Sienna ekki eins mikið viðriðin hönnunarferlið eins og systir sín. Á meðan Sienna er upptekin í tökum sér Savannah um dagleg störf tískumerkisins. Savannah er með alla faglegu hlutina á hreinu, „systir mín er teiknarinn. Ég get varla teiknað spýtukarl, hvað þá kjól," sagði Sienna á frumsýningunni. „Ég segi, þú veist, getum við gert topp í krumpaða efninu? Og hún segir, ‚organza‘. Ég tala ekki málið. En ég hef smekkvísi sem hún skilur."
