Skóhönnun Olsen systra
Fyrir haustið hafa Olsen systur, þær Ashley og Mary-Kate, opinberað skólínu í annað sinn innan merkis síns Elizabeth & James. Fyrri skólínan þótti heppnast nokkuð vel en sú seinni jafnvel betur. Línan er mjög fjölbreytt og inniheldur allt frá pinnahælum til grófra stígvéla – systurnar hafa hannað skó fyrir alla sína viðskiptavina, hver sem stíll þeirra gæti hugsanlega verið. Þær nota ólík efni á borð við leður, rúskinn, flauel og blúndu í svörtu, brúnu, gráu, fjólubláu og bláu. Skórnir eru enn ekki komnir í almenna sölu en hægt er panta þá á Saks.com.
Olsen systur voru nýlega viðurkenndar sem hönnuðir með því að fá inngöngu inn í félag amerískra fatahönnuða, CFDA. Ashley er svo í viðtali í september hefti Marie Claire þar sem hún talar um tísku og stíl þeirra systra. „Mary-Kate og ég vitum af trendum og stílum, en þegar upp er staðið hugsum við ekki tvisvar um það,“ segir hún í samtali við tímaritið. „Ég held að annað hvort fæðistu með stíl eða ekki. Mary-Kate og ég hugsum ekki um tísku sem hreinan og fallegan hlut. Við eiginlega klæðumst henni og lifum í henni.“
