Skólína væntanleg frá Jason Wu
Jason Wu; haustlína Jason Wu 2009.
Jason Wu, bandaríski hönnuðurinn sem komst á kortið þegar forsetafrúin Michelle Obama birtist í flíkum eftir hann, hefur nú sagt frá áætlunum um að stækka fyrirtæki sitt. Þær felast í því að koma á markað snyrtivöru- og skólínu. Skóhönnuðurinn Manolo Blahnik hannaði skóna fyrir haustlínu Wu, en sjálfur hefur Wu neitað því að ætla í samstarf við Blahnik fyrir sína eigin skólínu, sem mun birtast í sumarlínu næsta árs.
Þegar hann sagði frá komandi áætlunum lýsti hann einnig hugsun sinni bakvið tískuhönnun, „ég hef aldrei verið samkvæmt nýjustu tísku og ég hanna ekki þannig fatnað. Ég hanna fyrir alvöru konur, eldri konur með kvenlegan líkama." Hann vill að flíkurnar sínar séu viðeigandi eftir 30 ár, en hönnun hans inniheldur klassísk snið með björtum litum inn á milli og er hún fyrst og fremst klæðileg.
Wu segist reyna að finna meðalveginn í hönnun sinni þannig hún hafi gæða tískuútlit en sé samt aðgengileg. Því má ekki búast við rándýrum skóm eða ýktri hönnun. Hann vill ekki að skórnir séu of skrautlegir, heldur á hún að geta selst í verslunum. Ein ástæðan fyrir því að hann vildi ekki í samstarf við Blahnik var sú að línan á að hæfa til sölu, en Blahnik er þekktur fyrir dýra lúxusskó.
