Skosku tískuverðlaunin

37601246068201frettirsfa.PNG
Graeme Black; Holly Fulton; Pam Hogg. Í hringjunum má sjá brot af haust- og vetrarlínu Graeme Black 2009-2010.

Skosku tískuverðlaunin voru haldin hátíðlega fyrir viku síðan. Fæstir gera sér eflaust grein fyrir því að hinir farsælu hönnuðir Christopher Kane og Jonathan Saunders eru í raun skoskir en ekki breskir. Þeir voru bæðir tilnefndir til hönnuðs ársins ásamt Graeme Black og Laura Lees sem eru minna þekkt á alþjóðlegan mælikvarða. Black hreppti á endanum verðlaunin og þótti það nokkuð óvænt. "Þrátt fyrir ótrúlega hæfileika keppinautanna var það ánægjulegt að sjá Graeme vinna. Hann hefur klassískan stíl blandaðan saman við nútímaleg smáatriði, oft innblásin frá skoskri arfleið sinni. Þannig það var viðeigandi að hann skyldi hljóta verðlaunin í ár," segir ritstjóri Vogue.com.

Í flokknum Ungi hönnuður ársins vann Holly Fulton en þekktasti hönnuðurinn sem tilnefnd var í þeim flokki var eflaust Louise Gray. Merkilegustu verðlaun kvöldsins var hins vegar þegar Pam Hogg var vígð í frægðarhöll skosku tískuverðlaunanna. Hogg hefur verið viðriðin tískuhönnun frá því á níunda áratuginum og dressað margar stjörnur, þar með talið Kylie Minogue. Verðlaunin í heild voru vegleg en gefin vor verðlaun í hinum ýmsu flokkum sem verða ekki allir taldir upp hér. Áhugasamir geta leitað frekari upplýsina á vefsíðu verðlaunanna, www.scottishfashionawards.com.