Sólarfítus Visionaire tímaritsins
Visionaire 56 SOLAR; ljósmynd eftir Inez van Lamsweerde og Vinoodh Matadin.
Nýjasta hefti Visionaire tímaritsins er með nýrri tækni sem þýðir að ljósmyndir blaðsins sjást aðeins í lit þegar þær eru bornar undir sólarljós. Visionaire 56: SOLAR kallast þetta umrædda hefti en í því birtast verk fremstu tískuljósmyndara nútímans eins og Mario Sorrenti, David Sims og Peter Lindbergh. Calvin Klein er sérstakur samstarfsaðili í blaðinu. „Samvinna Visionaire og Calvin Klein Collection er frábær samruni af fagurfræði og nýsköpun," segir Cecilia Dean, ritstjóri Visionaire.
Visionaire lista- og tískutímaritið er þekkt fyrir að vera öðruvísi og hefur verið sagt ‚gallerí á pappír‘ og ‚hátískuútgáfa af tímariti‘. Blaðið hefur komið út þrisvar sinnum á ári síðan 1991 og hefur hvert blað sérstakt þema, en þau eru eftirsóttarverð og mikill safngripur. Hugmynd nýjasta blaðsins, sem er það fimmtugasta og sjötta í röðinni er vissulega mjög sérstök. Það er þó ekki hægt að skoða SOLAR heftið í lit á hverjum degi nema maður búi á sólríku svæði en hinir verða að draga það fram á sumardögum til að njóta ljósmyndanna.
