Sölusíða fyrir íslenska hönnuði
Icelandic-Collection.com er ný sölusíða sem mun selja vörur eftir íslenska hönnuði fyrir erlendan markað. Vefurinn opnar í maí en nú stendur yfir leit á hönnuðum sem hafa áhuga á að selja vörur sínar á síðunni. Hönnuðir sem selja sína hönnun á Icelandic-Collection.com fá góða markaðssetningu og kynningu á erlendum vettvangi og geta því einbeitt sér að því sem er mikilvægast, að hanna og þróa vörur.
Sex manns standa að Icelandic Collection en hugmyndina fékk hönnuðurinn Einar Thor þegar hann velti fyrir sér hvað þyrfti til að íslenskir hönnuðir ættu auðveldara með að koma sér á framfæri á erlendum vettvangi. Meginmarkmiðið er því að styðja við bakið á íslenskum hönnuðum og gefa þeim tækifæri til að sanna sig í hinum stóra heimi.
Eigendurnir hugsa síðuna ekki sem gróðamaskínu en í stað þess að fara hefðbundnu leiðina og kaupa vörur inn í heildsölu og eiga þá hættu að sitja uppi með stóran lager af vörum, þá hafa þeir ákveðið að taka inn fasta prósentu af hverri seldri vöru. Prósentuupphæðin er svo notuð til frekari kynninga á vörunum.
Það liggur enginn vafi á því Icelandic-Collection.com er verðugt verkefni sem löngu er kominn tími á. Leitin er hafin af efnilegum hönnuðum sem vilja taka þátt í verkefninu en þeir sem hafa áhuga á að selja hönnun sína á síðunni er bent á netfangið sales@icelandic-collection.com.
