Söngleikir um Saint Laurent og Dior
Yves Saint Laurent; Christian Dior.
Kvikmyndin um hina goðsagnakenndu Coco Chanel var frumsýnd fyrir stuttu, en nú á að heiðra annan virtan franskan hönnuð, Yves Saint Laurent, með söngleik. Saint Laurent dó í fyrra af völdum heilaæxlis en hann var mikill missir fyrir tískuheiminn, enda lofaður fyrir hönnun sína á ‚Le Smoking‘ jakkafötum fyrir konur. Samkvæmt nýjustu fréttum á að yfirfæra æviskeið Saint Laurent í tónlist.
Franski lagahöfundurinn Pierre-Dominique Burgaud vinnur að tónlistarframleiðslu um líf hönnuðarins, en félagi hans Alian Chamfort sér um sönginn. Lífsförunautur Saint Laurent, Pierre Bergé, hefur fengið forsmekk af lögunum og segir þau afar hjartnæm. Söngleikurinn hefst á árunum þegar ungur Saint Laurent starfaði sem hátískuhönnuður hjá Christian Dior.
Yves Saint Laurent er ekki eini hönnuðurinn sem verður settur upp í söngleik, því unnið hefur verið að söngleik um Christian Dior í eitt ár. Sá söngleikur er enn í vinnslu en verður líklegast frumsýndur á árinu á Broadway í New York. Christian Dior dó um miðja síðustu öld aðeins 52 ára að aldri. Söngleikurinn, sem kallast The Lifes and Times of Christian Dior, mun spanna áratug, frá því Dior tískuhúsið var stofnað 1947þangað til Christian Dior andaðist árið 1957.
