Sophia Kokosalaki fyrir Diesel Black Gold
Sophia Kokosalaki; haustlína Sophiu Kokosalaki 2009; haustlína Diesel Black Gold 2009.
Fyrst var það sænski tískuhönnuðurinn Ann-Sofie Back fyrir gallabuxnamerkið Cheap Monday. Nýjustu fréttir herma hins vegar að gríski tískuhönnuðurinn Sophia Kokoslaki hafi verið fengin í hönnunarteymi Diesel Black Gold. Ekki hefur verið greint frá því hvaða stöðu Kokosalaki mun gegna innan teymisins en hún er talin vera ein af aðalhönnuðunum. Black Gold er fínni lína Diesel gallabuxnamerkisins en fyrsta línan sem Kokosalaki hannar fyrir merkið er haustlína ársins 2010.
„Hæfileikar Kokosalaki eru ótrúlegir. Smekkur hennar á hágæðatísku eru nú þegar vel þekktir, en það sem fólk býst ekki endilega við frá henni er kunnátta hennar á gallaefni og nútímaþægindum, sem er kjarni Diesel Black Gold," segir stjórnarformaður Diesel, Renzo Rosso. „Ég vona að þessi reynsla muni gefa henni tækifæri á frekari staðfestingu í alþjóðlega tískuheiminum í dag." Kokosalaki hefur undanfarin ár hannað fyrir merki í eigin nafni sem hefur gengið vel en árin 2006 og 2007 var hún einnig við listræna stjórn franska tískuhússins Vionnet. Þrátt fyrir nýja starfið hjá Diesel mun Kokosalaki ekki hætta að hanna fyrir sína eigin línu.
