Stella McCartney styður PETA
Frá vinstri: Stella McCartney, Paul McCartney og söngkonan Pink á sýningu Stellu McCartney í París 9.mars.
Breski hönnuðurinn og dóttir Bítilsins Paul McCartney, Stella McCartney, sýndi á tískuvikunni í París í síðustu viku. Það var þó ekki einungis flott tískulínan sem vakti athygli viðstaddra því hönnuðurinn, sem er mikill dýraverndunarsinni, notaði tækifærið og auglýsti nýja herferð frá dýraverndunarsamtökunum PETA.
McCartney notar aldrei leður, feld eða annað sem kemur frá dýrum í línur sínar sem sannar að hönnuðir þurfa ekki að innihalda þess konar efni í hönnun sinni til að komast langt í bransanum. Sannleikurinn er hins vegar sá að loðfeldir eru lúxusvara og því mikið notaðir í tískulínur, sem og leðrið sem er búið að vera mjög vinsælt undanfarið.
Eftir að haustsýningu McCartney lauk var nýjasta auglýsingin frá PETA afhjúpuð með söngkonunni Pink í fararbroddi, en hún lær teiknimyndapersónu rödd sína í herferðinni ásamt breska leikaranum Ricky Gervais. Herferðin kallast ‘Stolen for Fashion‘ og er ætlað að draga úr notkun felds og leðurs í tískuheiminum.
Nokkrum fannst auglýsingin frekar ágeng en í henni birtist ríkt par þar sem konan heldur á tösku úr krókódílaleðri og maðurinn á jakka úr kanínufeld. Svo birtast blóðug dýrin, krókódíllinn og kanínan, og heimta að fá húðina sína til baka. Þannig fær herferðin nafnið ‘Stolið fyrir tískuna‘ þar sem húðum dýranna er stolið af þeim til að nota í tískuvarning.
Fréttir herma að tískudrottning loðfeldanna, Anna Wintour, hafi heilsað aðstoðarforstjóra PETA á sýningu McCartney. Það verður að teljast til mjög mikilla tíðindi þar sem Wintour hefur í gegnum árin verið stanslaust skotmark PETA meðliðma en þeir hafa hent ýmsu í hana til að mótmæla notkun hennar á loðfeldum. Það gæti því verið að hin mikla vinna PETA um að koma skilaboðum sínum upp á yfirborðið í tískuheiminum sé loksins farin að skila einhverjum afköstum.
