Stílleyndarmál Carine Roitfeld

48731242481636frettircarine.PNG

Carine Roitfeld, sem er stór áhrifavaldur í tískuheiminum vegna starfs síns sem ritstjóri franska Vogue, var í viðtali við Acne Paper fyrir alls ekki svo löngu síðan. Carine er ekta frönsk dama, en þrátt fyrir að vera á sextugsaldri er hún enn ungleg og gefur þeim yngri ekkert eftir í klæðaburði. Hún segir franskar konur ekki háðar því að reyna að yngja sig upp með hjálp botox. „Við höfum fallegar eldri konur hér í París. Það er þannig menning í Frakklandi að jafnvel þótt þú sért eldri geturðu samt verið falleg."

Carine ljóstraði jafnframt upp ýmislegu um stíl sinn, en hún er þekkt fyrir að ganga í flottustu hönnuðunum hverju sinni og segist hún sjaldan klæðast gallabuxum. „Ég klæðist bara gallabuxum og flatbotna skóm þegar ég er í fríi, aldrei í vinnunni. Ég er með flotta leggi og vel því frekar pilsin mín og háu hælana. Það er minn einkennisbúningur. Gallabuxur eru fyrir aðstoðarfólkið mitt." Þó svo að hún klæðist pilsum lætur hún ekki sjá sig í mínípilsum þar sem þau elda hana, pilsin eru ávallt um og rétt fyrir ofan hnéð.

„Ef fólk biður mig um að lýsa klæðnaði mínum þá segi ég alltaf 'frekar klassískur með djarfleika‘," segir Carine um sinn eigin stíl. Hún segir að merkin þýði ekki allt, „þetta snýst miklu frekar um hvernig þú blandar fötunum saman." Franskar konur eru vanalega fullkomlega stíliseraðar og reyna ekki of mikið. Þær flassa til að mynda ekki hönnunarmerkjum hingað og þangað. „Ímyndaðu þér lönd eins og Rússland og Kína, jafnvel Austur Evrópu. Þeir hafa ekki fatamenninguna þannig þeir vilja sýna að þeir geti keypt Dolce & Gabbana tösku, þeir vilja sýna merkin."

Þótt ótrúlegt megi virðast þá hefur Carine hugmynd um konu sem hún myndi frekar vilja vera. „Þú veist um hugmyndina um Saint Laurent konuna. Hvers konar draumur sem hún var: klæddist buxum, hendur í vösum, engin taska, gegnsæ skyrta. Ég elska þá konu. Hún er akkúrat sú sem ég myndi vilja vera ef ég gæti valið." Þessa hugmynd að konu reynir hún að yfirfæra í Vogue Paris. Fyrir mörgum er Carine táknmynd hinnar frönsku konu sem hefur áhuga á tísku en lætur hana ekki leiða sig áfram.