Stjörnurnar sem lærlingar hjá tímaritum
Tallulah Willis; Coco Rocha, Chanel Iman; Kanye West.
Lærlingastöður tískutímarita virðast vera vinsælar í augnablikinu meðal fræga fólksins. Fyrr í mánuðinum komst það í fréttir að dóttir Demi Moore, Tallulah Willis, væri lærlingur hjá Harper‘s Bazaar tímaritinu. Willis, sem er aðeins 15 ára gömul, sagðist vera að fylgjast með störfum tískufólksins og fær hún meðal annars að sitja fundi ritstjóra, tískudeildarinnar og markaðshópsins. Ekki er það starf slæmt sé hugsað til þess að flestir aðrir lærlingar byrja á því að vera kaffisendlar. Miðað við hversu margir úr röðum stjarnanna hafa tekið upp á þessu nýja starfi undanfarið þá er aðeins tímaspursmál hver sé næst.
Nýlega hafa tvær fyrirsætur komist í fréttir fyrir að vera í lærlingastöðum hjá Vogue. Fyrst var það hin kanadíska Coco Rocha, en hún fékk að fylgjast með ferli tímaritsins í ákveðinn tíma. Fyrirsætan Chanel Iman fékk svo að hjálpa til á skrifstofu Teen Vogue í síðustu viku. Hún er þó ekki skráður starfsmaður tímaritsins, heldur átti hún lausan tíma sem hún ákvað að nota í að kynnast bransanum betur. En síðasta stjarnan til að taka þátt í lærlingarstarfi er enginn annar en rapparinn Kanye West sem fékk lága stöðu innan Gap fatakeðjunnar. Heimildamaður segir að hann sé að reyna að læra á tískubransann frá byrjun og vill hann gera það á óáberandi hátt.
