Strigaskór frá Christian Louboutin
Hlébarðastrigaskórnir; hönnuðurinn Christian Louboutin; bleikir sandalar með siffonlaufum úr sumarlínu Louboutin.
Franski skóhönnuðurinn Christian Louboutin sýndi á dögunum breskum tískufjölmiðlum næstu haust- og vetrarlínu sína. Það sem athygli vakti var að innan um himinháa glæsihæla og Swarovski demantskreydda skó var eitt par af strigaskóm. Louboutin hefur aldrei áður innihaldið strigaskó í línunni sinni þar sem hann einbeitir sér frekar að skóm í glamúrstíl.
Vissulega hefur hann hannað flatbotna skó, en þeir hafa vanalegast verið opnir og penir ballerínuskór. Fyrstu Louboutin strigaskórnir eru svo sannarlega ekki af venjulegu gerðinni. Skórnir eru í hlébarðamunstri með fínlegri hestahársáferð. Ekki var við neinu minna að búast frá hönnuðinum en nú brennir sú spurning á mörgum hvort strigaskórnir séu með rauðum sóla líkt og allir hælaskórnir.
