Stylista hefst á þriðjudaginn
Næsta þriðjudag, eða 2.júní, klukkan 21 hefur Skjár Einn sýningar á raunveruleikaþáttaröðinni Stylista. Þeir sem horfa reglulega á Skjá Einn hafa eflaust tekið eftir auglýsingum þáttanna sem birtast ötullega á skjánum. Þátturinn er góð innsýn í það hvernig tískutímarit virkar en þar fá ellefu manns tækifæri til að vinna stöðu hjá Elle tískutímaritinu. Í hverjum þætti fá þátttakendurnir krefjandi verkefni sem þeir þurfa ýmist að leysa í hóp eða sem einstaklingar. Eins og gefur að skilja er nóg af dramatík í þáttunum þar sem þátttakendurnir búa saman á meðan á tímabilinu stendur og eru þeir allir ólíkir persónuleikar. Í hverjum þætti er einn sendur heim en sigurvegarinn fær greidda stöðu á ritstjórn Elle, íbúð til afnota á Manhattan ásamt fatastyrk frá H&M.
Það er ritstjóri tískufrétta, Anne Slowey, sem er aðaldómari þáttanna en henni til halds og trausts er listrænn stjórnandi tímaritsins, Joe Zee. Slowey hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir vankunnáttu sína á að ganga í háum hælum, sem sést best í fyrsta þættinum þegar hún stígur úr bifreið og gengur inná skrifstofu Elle. Þeir sem þekkja til segja Anne Slowey ekki vera eins kalda persónu og hún kemur fyrir sjónir í Stylista þáttunum, en henni er ætlað að leika svipað hlutverk og Meryl Streep í kvikmyndinni The Devil Wears Prada. Þátturinn átti ekki mikilli velgengni að fagna í Bandaríkjunum, að minnsta kosti eins og búist var við, en það er aldrei að vita hvernig íslenskt tískuáhugafólk tekur í hugmyndina.
Hér fyrir neðan má sjá sýnishorn af því sem koma skal í þáttaröðinni.
.
