Svar New York við minnkandi sölu

81641243345020frettir2605.PNG
Bloomberg borgarstjóri með Önnu Wintour, Carolina Herrera, Oscar de la Renta og fleirum; fyrirsætan Lily Donaldson í Fashion's Night Out bolnum sem verður til sölu í völdum verslunum 10.september.

Nú þegar hönnuðir og verslanir eiga í harðri baráttu við minnkandi sölu, sem hefur neytt margar minni hönnunarverslanir til að hætta starfsemi sinni, þá hefur borgarstjóri New York reynt að finna lausn á vandanum með því að blása til heljarinnar veislu á meðal verslana. Borgarstjórinn Michael Bloomberg tilkynnti tillöguna í síðustu viku ásamt Önnu Wintour, ritstjóra Vogue, Veru Wang, tískuhönnuði og Terry Lundgren, forstjóra stórverslunarinnar Macy‘s. Það er New York borg, Vogue tímaritið og félag amerískra fatahönnuða, CFDA, sem standa að tískuveislunni.

Viðburðurinn kallast Fashion‘s Night Out og mun standa frá klukkan 6 til 11 að kvöldi 10.september. Sama kvöld hefst tískuvikan í New York og er verslunarfólk hvatt til að hafa opið lengur, svo langt frameftir sem til miðnættis. Mikið verður af erlendum tískublaðamönnum og innkaupafólki í borginni útaf tískuvikunni og því ætti uppátækið að falla vel í kramið hjá því fólki. Tískuverslanir víðs vegar um borgina munu halda partý sem verða opin öllum þeim sem vilja mæta. Hönnuðir munu láta sjá sig í eigin verslunum og einnig í stórverslununum Saks Fifth Avenue og Macy‘s.

Svipaður viðburður var haldinn á Madison Avenue undir lok tíunda áratugarins þegar smásala átti slæmt tímabil. Aðstandendur viðburðarins í haust vonast til að hann nái einnig til annarra landa, enda segja þeir hann alþjóðleg hátíðarhöld tískunnar. Í New York verða yfir 100 verslanir opnar í fimm hverfum borgarinnar. „Tíska er ómissandi fyrir efnahag New York," sagði Bloomberg á blaðamannafundi. Hann sagði jafnframt að meira en 800 tískufyrirtæki séu staðsett í New York borg og að iðnaðurinn geti af sér 10 billjónir dollara á ári hverju. Bloomberg segir tískuheim New York vinna frábæra vinnu í að gera borgina spennandi, enda New York ein af stærstu tískuborgunum.

Hugmyndin er svo sannarlega sniðug og ætti að geta aukið sölu umtalsvert. Fyrir utan partý í verslunum verða einnig tískusýningar og lifandi tónlist á boðstólnum. Búist er við því að stjörnurnar láti sjá sig og sumar verslanir ætla að gefa viðskiptavinum gjafir. Viðburðurinn verður haldinn í öllum þeim löndum sem Vogue hefur útgáfu, og því verður spennandi dagskrá að finna í heimsborgunum London, París, Mumbai og Mílan meðal annarra. Með viðburðinum er ætlað að fá fólk spennt fyrir því að versla og að styrkja verslunarumhverfið, allt frá litlum hönnunarverslunum til stórra alþjóðlegra verslanakeðja.

Heimasíða hefur verið opnuð til að halda utan um þær verslanir sem taka þátt í hátíðarhöldunum. www.fashionsnightout.com