Svartar Barbie dúkkur í ítalska Vogue
Franca Sozzani, ritstjóri ítalska Vogue, ákvað að nota aðeins svartar barbídúkkur í sérstöku Barbie aukablaði sem fylgdi með nýjasta júlí tölublaðinu. Barbie blaðið var gefið út í tilefni af 50 ára afmæli dúkkunnar á þessu ári, en sérstakt þótti að hún notaði aðeins svartar barbídúkkur. „Barbie hefur verið goðsögn í gegnum margar kynslóðir,“ segir Sozzani en ástæðan fyrir tileinkun svartra barbídúkka í afmælisblaðinu var að hún vildi senda skilaboð breyttra tíma.
Í blaðinu má sjá dúkkurnar í hátískustellingum klæddar í lúxusfatnað með glæsilegar hárgreiðslur og förðun. Barbie blaðið kemur ári á eftir sérstöku Black Issue ítalska Vogue þar sem allt júlí tölublað ársins 2008 innihélt svartar fyrirsætur á borð við Chanel Iman og Jourdan Dunn og þótti stórt skref innan tískuheimsins í að viðurkenna vinsældir svartra fyrirsæta. Fyrsta svarta barbídúkkan kom á markað árið 1980, en í ár mun Barbie koma með nýja línu af svörtum dúkkum sem kallast So In Style.
