Svört lína frá Comme des Garcons
Svartur er tímalaus og klassískur litur sem nánast ómögulegt er að fá leið á, enda er hann einna mest áberandi í fataskápum Íslendinga. Til að halda upp á 40 ára afmæli Comme des Garcons hefur stofnandi þess, Rei Kawakubo, hannað línu sem kallast Black – og er eins og nafnið gefur til kynna, öll í svörtu með nokkrum undantekningum. Þrátt fyrir að svarti liturinn sé dökkur og frekar drungalegur telur Rei línuna koma með jákvæða orku á tíma fjárhagserfiðleika. Línan er helmingi ódýrari en aðallínan en hvað hönnunina varðar þá er hún eitthvers staðar á milli línu Rei fyrir H&M og aðallínu Comme des Garcons.
Margar eldri flíkur Comme des Garcons verða endurgerðar í svörtu og inniheldur línan ýmis einkennismerki aðallínunnar eins og doppótt, röndótt og taflborðamunstur. „Ég byrja allar línur með einu orði. Ég man aldrei hvaðan þetta eina orð kom. Ég byrja aldrei línu á einhverju sögulegu, samfélagslegu, menningarlegu eða annarri hlutstæðri tilvitnun eða minningu. Eftir að ég hef fundið orðið, þá þróa ég það á rökrænan hátt," útskýrir Rei. Margir telja þessa ákvörðun Rei að koma með ódýrari línu vera gáfulegan leik til að koma til móts við viðskiptavini sína – og hugsanlega ná í fleiri.
Í Tókýó, heimaborg Rei, hafa verið byggðar Black míníverslanir innan í stórum deildarverslunum og ramma þær þannig inn línuna. Black línan verður hleypt af stokkunum á næstu vikum um allan heim og þar á meðal í Dover Street Market í London. 22.júní opna sérstakar Black verslanir í New York og París og einnig verða opnaðar tímabundnar míníverslanir innan deildarverslananna Barneys í New York og Colette í París. Línan mun vera fáanleg í yfir eitt ár á flestum sölustöðum eða eins og Rei segir, „eins lengi og kreppan varir."
