Sýning fatahönnunarnema

23051240417269tiskusyninglhi.JPG

Í kvöld, miðvikudaginn 22.apríl, kl. 21 munu útskriftarnemendur í fatahönnun frá Listaháskóla Íslands sýna hönnun sína á tískusýningu í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu. Þar verður hægt að líta á hönnun níu fatahönnunarnema sem eru að enda sitt þriðja og síðasta námsár. Nemarnir, sem útskrifast með BA gráðu í fatahönnun, verða meðal annars dæmdir af Louise Wilson en hún er yfir meistaranámi í fatahönnun við Central Saint Martins listaskólann í London.

Útskriftarsýning fatahönnunarnemanna er góður vettvangur til að líta upprennandi hæfileikafólk Íslands í fatahönnun augum. Listaháskóli Íslands er talinn búa yfir góðu fatahönnunarnámi og því má búast við veglegri sýningu. Markmiðið fatahönnunarnámsins er að skapa nemendum aðstöðu til að mennta sig sem listamenn og gera þá reiðubúna að takast á við víðtæk viðfangsefni á skapandi hátt.

Meðal þeirra hönnuða sem hafa útskrifast úr fatahönnunardeild Listaháskólans síðustu ár eru Ásgrímur Már Friðriksson, sem hefur hannað fyrir E-Label; Harpa Einarsdóttir, sem hefur hannað undir merkinu Starkiller en hannar nú búninga fyrir CCP; og Eygló Margrét Lárusdóttir en hún er með merkið EYGLÓ. Það er því engin spurning að við munum fá að sjá flotta hönnun í framtíðinni frá þeim níu sem útskrifast á morgun.

Fatnaður útskriftarnemana verður til sýnis á Kjarvalsstöðum frá sumardeginum fyrsta, 23.apríl, til 3.maí auk verka myndlistar-, hönnunar- og arkitektúrdeildar Listaháskólans.