Target lína Önnu Sui opinberuð
Ódýra línan sem Anna Sui hefur hannað fyrir Target var nýlega opinberuð. Línan átti að vera innblásin af Gossip Girl og má greinilega sjá áhrifin í sumum flíkanna, en það sem er meira áberandi er hversu flíkurnar eru líkar fyrri hönnun Sui. Það virðist því sem hún hafi litið til baka til sinna fyrri lína og ákveðið að kópera vinsælar flíkur fyrir Target línuna og framleiða þannig ódýrari útfærslur. Sumum hefur fundist þetta lélegt á meðan aðrir hrósa happi um að geta loksins orðið sér úti um flík úr röðum Önnu Sui. Þess má geta að hönnuðurinn fékk verðlaun fyrir lífstíðarafrek á CFDA verðlaununum í júní, sem þykir mikill heiður.
Gossip Girl línan inniheldur 19 klæðnaði og er þeim skipt eftir persónum úr þáttunum vinsælu. Kjólar Blair eru með háu hálsmáli, af einhverjum ástæðum er fatnaður Vanessu í appelsínugulu og brúnu munstri, kjólar Jenny eru í svolitlum bóhemstíl á meðan klæðnaðir Serenu eru rokkaðir í svörtu og gráu. Á dögunum komst það svo í fréttirnar að yfirmenn hjá Target hafi ekki verið ánægðir með að bendla línuna við Gossip Girl af því þeim fannst svo mikið svall í gangi. Þeir hafa þó neitað orðróminum og segjast styðja línuna að fullu.
