Tekjuhæstu fyrirsætur heims
1. Gisele Bundchen (3 milljarðar íslenskra króna). 2. Heidi Klum (2 milljarðar). 3. Kate Moss (1 milljarður). 4. Adriana Lima (985 milljónir). 5. Doutzen Kroes (740 milljónir).
Forbes birti nýverið árlegan lista sinn yfir tekjuhæstu fyrirsæturnar. Efstu fimm sætin eru nákvæmlega þau sömu og í fyrra. Gisele Bundchen situr á toppnum en á eftir henni koma Heidi Klum, Kate Moss, Adriana Lima og Doutzen Kroes. Listinn tekur mið af tekjum fyrirsætanna frá júní í fyrra og til júní á þessu ári og þar sem kreppan hefur einkennt þann tíma hafa tekjur fyrirsæta almennt lækkað en nokkrar hafa þó þénað örlítið meira en í fyrra. Tekjur Gisele lækkuðu um 10 milljónir dollara frá því í fyrra þegar hún þénaði 35 milljónir dollara. Hún er samt sem áður langt fyrir ofan annað sætið, hana Heidi Klum, sem þénaði tveimur milljónum dollara meira þetta árið, eða 16 milljónir.
Aðrar fyrirsætur á listanum eru Victoria‘s Secret stúlkurnar Alessandro Ambrosio og Miranda Kerr ásamt vinsælum fyrirsætum stóru tískuhúsanna, Natalia Vodianova og Daria Werbowy. En aftur að fyrstu sætunum, Gisele auðgaðist á auglýsingaherferðum meðal annars fyrir Versace, True Religion gallabuxur og Dior. Klum fær sína peninga hins vegar frá sjónvarpsdílum á borð við Project Runway og þýsku útgáfuna af Next Top Model. Hún hefur einnig birst í auglýsingum fyrir Volkswagen, Diet Coke og Mc‘Donalds til að nefna nokkra. Nokkrar vinsælar fyrirsætur sem voru á listanum í fyrra sáust ekki á honum í ár, en það eru þær Gemma Ward, Hilary Rhoda og Karolina Kurkova.
Með lægðinni í efnahaginum hafa tískuhús og fyrirtæki í tísku- og fegurðarbransanum ekki einbeitt sér eins mikið að stóru nöfnunum. „Eftir nokkur ár með mismiklum árangri þar sem aðalþráhyggjan hefur verið að gera samninga við stærstu nöfnin eða stærstu stjörnurnar fyrir merkið þitt, þá eru fyrirtæki nú að leita að andliti sem mun ekki trufla skilaboð þeirra," segir Chris Gay, forstjóri umboðsskrifstofu með vinsælar fyrirsætur á skrá. „Fyrirsæturnar sem bera þess konar fegurð eru andlitin sem allir vilja núna, en það er sjaldgæf fegurð," bætir Gay við. Nú er því aðaláherslan á fegurð sem vekur upp góðar tilfinningar hjá viðskiptavinunum og dregur athygli að vörunni en minni áhersla á stjörnustöðu viðkomandi fyrirsætu.
