Þau ungu og kærulausu í LOVE
Opinberar forsíður annaðs tölublaðs LOVE, Alex Hartley og Coco Summer; Tavi á auglýsingaforsíðu tölublaðsins.
Annað tölublað LOVE tímaritsins kemur út í næstu viku og er nokkur eftirvænting innan tískuheimsins fyrir blaðinu. Fyrsta tölublað LOVE kom út í febrúar en það má segja að tímaritið sé afsprengi frá POP. Katie Grand, stofnandi POP, var fengin til að stofna nýtt tímarit innan Conde Nast fjölmiðlaveldisins í Bretlandi, sem hýsir til að mynda Vogue. LOVE er alls ekki ólíkt POP en þar er áhersla lögð á að líta á tísku og listir frá öðru sjónarhorni en meginstraumstískuritin.
Fyrsta tölublaðið snérist um sambandið millu tísku og frægðar, en hugmynd tölublaðs númer tvö er að líta á yngstu kynslóðina í tísku- og tónlistarbransanum. 13 ára tískubloggarinn Tavi er í blaðinu en meðal annarra sem birtast í myndaþáttum eru dætur Demi Moore, dóttir Donatellu Versace, Twilight leikarar og nokkuð óvænt, Miley Cyrus og Jonas Brothers. Það verður gaman að sjá hvernig mynd LOVE dregur upp af amerísku poppstjörnunum en hún verður væntanlega nokkuð öðruvísi.
Annað tölublað LOVE er með tveimur mismunandi forsíðum. Önnur er með Alex Hartley, óþekktum bassaleikara frá Birmingham sem ritstjórinn fann á netinu, en hina prýðir Coco Summer, dóttir rokkarans Sting. Grand segir að flestallir í blaðinu séu undir 21 árs, en titilnafn tölublaðsins er ‘Nýtt blóð: Þau ungu og kærulausu.' „Allt tölublaðið er í raun fullt af krökkum sem eru á þeim stað í lífinu þar sem þau hafa enga ábyrgð, þú ert nokkuð frjáls og allt er spennandi.“
