Thierry Mugler hannar á Beyoncé

98961238763809beyoncemugler.PNG
Beyoncé á tónleikum í Kanada í fyrradag; teikningar Thierry Mugler á nokkrum búningum tónleikaferðarinnar.

Hönnuðurinn Thierry Mugler hefur hannað alla búninga á Beyoncé í komandi heimstónleikaferð í kjölfar I Am...Sasha Fierce plötunnar. Líkt og búningar eru vanalega, eru þeir mjög dramatískir með glitri, leðri og ýktum formum. Andinn sem Mugler vildi skapa með búningunum var „tvíeðlið milli kvenmanns og stríðsmanns." Hann útskýrir þá sem margbrotna og segir þá eiga rætur í lögum Beyoncé – „kvenlegir, frjálslegir, stríðslegir, ákafir."

Teikningar af hönnun búninganna fóru á netið fyrir stuttu, en fyrstu myndirnar af Beyconé í þeim birtust í fyrradag. Þeir ýta undir kvenlegan vöxt hennar en eru í leiðinni djarfir og glamúrlegir með ofurkvenhetjuyfirbragði. „Sasha Fierce er önnur hlið af persónuleika Beyoncé," útskýrði Mugler nánar, „sem listrænn stjórnandi tónleikareisunnar, er það mín ábyrgð að láta hennar hugsjón verða að veruleika."

Það virðist hafa verið mikil vinna að hanna og búa til búningana, enda engu til sparað. Mugler lofar aðdáendum mörgum búningaskiptingum á meðan á tónleikunum standa. Hann hefur þó ekki einungis hannað búningana, því hann sjá einnig um ljós og sviðshönnun, og vann hann af kappi við að framkvæma óskir Beyoncé.