Tími fyrirsæta á forsíðum tímarita liðinn
Þrjár af níu fyrirsætum á forsíðu maí tölublaði Vogue (tveggja síðna lengin er á forsíðunni þar sem hinar sex birtast); fyrirsætur tíunda áratugarins á forsíðu Vogue árið 1990; Rihanna, væntanleg forsíðustúlka?
Um miðja síðustu viku var í gangi orðrómur þess efnis að Rihanna verði á forsíðu Vogue einhvern tímann á komandi mánuðum. Þetta var þó áður en nektarmyndir af söngkonunni voru birtar á slúðursíðum rétt fyrir helgi, en víst er að svoleiðis skandall gæti eyðilagt orðspor Rihönnu og sömuleiðis forsíðudíl við Vogue. Kveikjan að umræðunni um Rihönnu sem forsíðustúlku Vogue voru ákafar samræður hennar við ritstjóra Vogue í eftirpartýi Costume Institute galakvöldsins í síðustu viku. Rihanna hefur verið dugleg að prófa sig áfram í tískunni undanfarið, hvort sem fólki líkar stíll hennar betur eða verr, og væri því spennandi að sjá hvernig forsíðan myndi verða.
Það hefur verið vitað mál í nokkur ár að Hollywood stjörnur eru farnar að taka við af fyrirsætum á forsíðum tískutímarita. Meira að segja Anna Wintour, ritstjóri Vogue, sagði í síðustu viku að hún hallist frekar að stjörnum fyrir forsíður heldur en fyrirsætum þar sem stjörnurnar selja blaðið miklu betur. Þó er maí hefti Vogue sérstaklega tileinkað fyrirsætum, með allar helstu fyrirsætur nútímans á forsíðunni. Forsíðan er tengd fyrirsætusýningunni sem nú stendur yfir á Metropolitan safninu.
Anna Wintour hefur verið við stjórn Vogue í tvo áratugi og þekkir því tímana tvenna hvað forsíður varðar. „Áhugi almennings á fyrirsætum síðustu ár hefur ekki verið eins mikill og hann var í byrjun tíunda áratugarins þegar Naomi og Linda ollu miklum æsingi. Og þangað til að fyrirsætur verða stjörnur aftur á þeirra eigin forsendum, sé ég þær ekki fyrir mér selja eins vel á forsíðum eins og leikkonur," segir hin valdamikla Anna. Fyrirsætuaðdáendur ættu þó að næla sér í maí heftið af Vogue, en þar er skyggnst inn í líf fyrisæta – kærastana, börnin, fataskápana, sýningarpallana, mataræðið og dramatíkina.
