Tískufrumraun Miley Cyrus

25451240760369frettirmcyrus.PNG

Ungstirnið Miley Cyrus mun seint vera talin tískuíkon, en miðað við klæðnað hennar á frumsýningu kvikmyndar sinnar í Bretlandi í vikunni, virðist sem tískuvit hennar sé á betri veg. Þótt kjóllinn gæti hafa verið afrakstur samvinnu við stílista er hann engu að síður djarfur samkvæmt nýjustu tískustraumum. Kjóllinn er alls ekki ólíkur því sem hefur komið frá allra vinsælasta merki stjarnanna um þessar mundir, Balmain, enda skreyttur demöntum og metalsteinum ásamt því að vera með stórar axlir.

Kjóllinn er úr smiðju Max Azria fyrir Hervé Léger og er metinn á tæpa hálfa milljón íslenskra króna. Klæðnaður Cyrus, sem var fullkomnaður með klassískum svörtum Sergio Rossi hælum, hefur fengið jákvæð viðbrögð tískugagnrýnanda. Ljóst er að Cyrus hefur sérsamning við hönnuðinn Max Azria þar sem kjóllinn er úr línu næsta hausts og því ekki farinn í almenna sölu. „Max gerði hann og bætti svo við meira glitri bara fyrir mig," sagði unga stjarnan um kjólinn.