Tískuleiðtogar netheimsins

20971239715915frettir1404.PNG
Dolly Jones (ritstjóri Vogue.com), Nick Robertson (stofnandi ASOS), Natalie Massenet (stofnandi Net-A-Porter), Susanna Lau (bloggari, Style Bubble).

Það hefur mörgum sinnum verið sýnt og sannað hversu möguleikar internetsins eru miklir. Það varðar einnig tískuheiminn, ný tískublogg áhugafólks spretta upp á hverjum degi, tískunetverslanir verða síalgengari ásamt því að tímaritin eru farin að halda úti veglegum tískusíðum með nýjum fréttum og öðru tískuefni. The Indpendent Online heiðraði í síðustu viku 100 áhrifamesta fólkið innan tískunetheimsins í Bretlandi með bæði þekktum andlitum sem og nýjum nöfnum.

Á listanum má sjá frumkvöðla sem hafa komið með ferskar hugmyndir í sviðsljósið, sniðugt markaðsfólk, tískubloggara, ljósmyndara, netverslunareigendur og vefritstjóra. The Independent segir fólkið eiga það sameiginlegt að vera innblásið, áhugavert og valdamikið. Leon Bailey Green tók listann saman, "ég vildi gera eitthvað til að viðurkenna alla þá sem leggja sitt af mörkum í nettískuiðnaðinum, en einnig að bjóða upp á gagnlegar Hver er hver upplýsingar sem allir í iðnaðinum geta notað."

Þónokkrir vefritstjórar fengu sæti á listanum en þar má nefna ritstjóra Vogue.com, GQ.com og Glamour.com. Á listanum er einnig að finna stór númer í smásölu líkt og Nick Robertson, frumkvöðull ASOS netverslunarinnar, Natalie Massenet, stofnanda lúxusverslunarinnar Net-a-Porter, og eigendur My-Wardrobe.com. Listinn hefði svo ekki verið fullkominn nema hann innihéldi hina einu sönnu Susanna Lau, frá blogginu Style Bubble.