Tískulínur Nicole Richie & Rachel Zoe

96021238680060frettir0204.PNG
Nicole með skart úr línunni, House of Harlow 1960; Rachel Zoe.

Nicole Richie, sem setti skartgripalínu á markað í fyrra, hugar nú að frekari hönnunarvinnu í framtíðinni. Skartgripalínan kallast House of Harlow 1960 og er skýrð í höfuðið á dóttur hennar Harlow. Richie, sem er ólétt af sínu öðru barni, ætlar nú að setja ólettulínu á laggirnar með allt frá fatnaði til aukahluta. Línan mun líklega verða innblásin af hennar eigin stíl, en hún er talin ein smartasta móðirin í Hollywood.

Miðað við vinsældir skartgripalínunnar má ætla að óléttulínan eigi eftir að ganga vel, enda ábyggilega margar konur sem myndu vilja klæða sig í svipuð föt og Richie. Ólettulínan er þó ekki það eina sem hún er með á planinu því samkvæmt Women‘s Wear Daily er hún búin að semja við skóframleiðanda um að hanna 20 skópör sem viðbót í House of Harlow 1960 merkið.

Í öðrum fréttum tilkynnti stjörnustílistinn, Rachel Zoe, sem er talin eiga talsverðan heiður að vinsældum Richie sem stílíkons, að hún væri að fara að hanna fatalínu á viðráðanlegu verði. Samkvæmt henni á línan að innihalda fatnað, skartgripi og töskur ásamt ilmvatni. Ekki hafa nein smáatriði um gerð línunnar farið í fjölmiðla en búast má við glamúr og vintage áhrifum ef litið er til stíl Zoe sjálfrar.

Það kemur eflaust mörgum á óvart að hún skuli hafa ákveðið að hanna ódýra línu þar sem hún er þekkt fyrir að eyða háum upphæðum í tískuvarning, þá sérstaklega vintage skartgripi sem hún á mikið safn af. Hún  hefur þó svör við því, „Það er engin ástæða fyrir mig að gera lúxuslínu. Það er ekki sú sem ég er. Ég held að það sé ekki það sem fólk vilji frá mér. Ég held að ég þurfi að gefa fólki þessa ímyndun gerða að raunveruleika. Það er vinnan mín."

Það verður forvitnilegt að sjá hvernig báðar línurnar koma út en þær munu ekki koma fyrir sjónir almennings fyrr en á næsta ári. Rachel Zoe og Nicole Richie hafa verið lofaðar fyrir flottan stíl síðustu árin en nú reynir á þeirra eigin hönnunarhæfileika og því er spurning hvort línurnar muni standa undir væntingum eður ei.